Þórunn Guðmundsdóttir á 100 ára afmæli þann 7. maí 2020.
Til heiðurs Dúddu á þessum tímamótum ætlum við að rifja upp ýmis atvika frá þeim tíma sem við bjuggum í verkamannabústaðnum að Hvanneyrarbraut 62. Við vorum börn og atvikin eru séð frá sjónarhóli barna, sem ekki var alltaf hár. Við áttum ákaflega góðan tíma sem börn í verkamannabústaðnum.
Hér er alls engin söguleg úttekt, heldur nokkur atvik sem skjótast upp í hugann. Þess ber að gæta að við vorum krakkar og atvikin verða að skoðast í því ljósi.